laugardagur, febrúar 11, 2006
Best að reyna að standa sig

4 störf sem ég hef unnið við um ævina
Mataskammtari á Landakoti
Þjónn
Kassadama
Aðhlynning á Hrafnistu(my favorite job)
4 kvikmyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur
Rocky Horror
Hárið
The Commitments
Sódóma Reykjavík
4 staðir sem ég hef búið á
107
111
109
103
4 sjónvarpsþættir sem mér líkar
Grannar(veit þetta er sápa, but still)
Grey's Anatomy
Survivor
Amazing Race
Og svo mikið meira;o)
4 staðir sem ég hef heimsótt í fríi
Ástralía
Danmörk
Þýskaland
Frakkland
4 síður á netinu sem ég heimsæki daglega
thorunn-emilia.barnaland.is
mikael-orri.barnaland.is
leikjanet.is
mbl.is
4 matarkyns sem ég held uppá
Kjöt í karrý
Grænmetislasagne a la Ása Björg
Allskonar kjúlli
Skötuselur
4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna
Ástralía
Spilavíti í L.V.(vill einhver styrkja mig???)
Danaveldi
Haiti(ekki viss hvort þetta sé rétt skrifað, en hlýtur að skiljast)
4 aðilar sem ég klukka
kErla bumba
Gudda
Steinunn Þóra
Helga Sigurveig
Jæja þá er ég búin að skila mínu Ása mín.
Að öðru þá er hún Þórunn Emilía orðin 59cm og 5415gr, það er ekkert smá sem að litla barnið mitt er búin að stækka og þyngjast. Svo er hún alveg eins og mamma sín, algjör vagnastelpa, getur sofið og sofið endalaust í fína vagninum sínum.
Jæja, ekki meira í bili, sí jú leiter.
sunnudagur, febrúar 05, 2006
Jæja..........

Þá er komið nafn á yndislegu prinsessuna okkar, það var á afmælisdaginn minn þann 29. janúar sem að stelpan fékk það fallega nafn Þórunn Emilía. Þórunn er í höfuðið á föðurömmu minni og frænku minni heitinni og Emilía er út í loftið, okkur þótti það bara fallegt og passa vel við. Núna erum við mæðgur sem sagt allar búnar að skíra á afmælisdeginum okkar, Örn Aron var skírður á afmælisdaginn hennar mömmu, Mikael Orri var skírður á afmælisdaginn hennar Lilju Bryndísar og svo Þórunn Emilía á afmælisdaginn minn. Við erum svo eins eitthvað;o)
Annars er voða lítið að frétta héðan. Þórunn Emilía er drauma barn, sefur allar nætur allt upp í 9 klst. held að það sé ekki hægt að biðja um það betra, svo sefur hún í svona 4 tíma í vagninum sínum, þannig að ef að ég er e-ð þreytt að þá er sko ekki vandamálið fyrir mig að leggja mig.
En að allt öðru, þá er ég alveg á því að Sylvía Nótt eigi að keppa fyrir hönd Íslands í Júróvisjón og er þetta mikið sagt komandi út úr mínum munni því að ég hef ekki verið að fíla hana neitt allt of vel, en þessi keppni er bara farin að ganga út á einhverjar fígúrur og við höfum eina fígúru hér á Íslandi sem heitir Sylvía Nótt.
En jæja þá gott fólk, nú held ég að það sé best að fara að setja utan um sængina svo maður geti svifið í draumaheiminn.
Óver end át;o)